• is
  • en

Staða: til á lager og tilbúið til afhendingar

3.990 kr.

Örugg greiðsla:

RapydNetgiro
WILD MAN Waterproof Bicycle Bag
Hlífðartaska með TPU glærum, næmum snertiskjá og símafestingum með frönskum rennilás innaní.
 
Þessi litla taska heldur símanum þínum föstum fyrir framan þig á hjólinu þannig að þú getir notað hann vandræðalaust á meðan þú ert á ferðinni. Til dæmis notað GPS, kort eða bara svarað í símann.
Töskuna má t.d. nota á fjallahjólið, götuhjólið eða rafhjólið.
 
Efri hluti töskunnar er búinn til úr hágæða, vatnsþéttu efni með tvöföldum, þéttum rennilásum sem koma í veg fyrir að bleyta komist inn. Síðan er hægt að tengja heyrnartól eða USB kapal á milli tvöföldu rennilásana.
 
Taskan er búin til úr ethylene-vinyl acetate (EVA) og hitamótuð, þannig að hún helst alltaf stíf. Hún er síðan klædd að utanverðu með koltrefjaefni sem er ákaflega slitþolið.
Taska sem þolir hristing og  þrýsting  án þess að aflagast. Drulla festist ekki við hana, hana má strjúka af eða smúla með vatni.
 
Neðri pokinn í töskunni kemur að góðum notum til að geyma t.d. síma, rafhlöðu, gleraugu, hanska, lítið vasaljós, hitakrem, litla hjólapumpu, viðgerðarsett, lykla, veski , og svo framvegis.
 
Passar fyrir síma minni en 6,5 tommur, s.s.  Mi 10T Pro,Mi 10 Lite, Mi Note 10, Pocophone X3, Rendmi 9 / iPhone X, XS Max, XR 8 7 6s, 6 plus, 5s / Samsung Galaxy s8, s7, note 7.
 
Þrjú strappbönd með frönsku renniláls festa töskuna tryggilega á hjólið, eitt að framan og tvö undir. Þau festa hana tryggilega þannig að hún hreyfist ekki úr stað þó að farið sé um illfærar slóðir.
Redmi
Mi
Yeelight
Samsung
Openear
Aqara
Amazfit
Enchen
Viomi
Cecotec
InFace
Doctor B.
IMI
POCO
Xiaomi
Lemo
70mai
Berrcom
SanDisk
Soocas
Wuben
Xiaovv
Roidmi
Google
Tuya
Escam
Huawei
Roborock
Hutt
Haylou
Ulefone
Petkit
Amazon
Baseus
OnePlus
BigBig Won
Motospeed
TP-LINK
Petoneer
Apple
Deerma
Wanbo
OneOdio
SJCAM
Jeeback
Blackview
Top
Velkomin í vefverslun Tunglskins. Þessi síða notar vafrakökur (e. Cookies). Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka
Stilla Taka