Blandaðu og búðu til safa, smoothies og hristinga, stútfulla af nauðsynlegum næringarefnum og taktu með þér hvert sem er.
Ferðablandarinn er tilvalinn til að taka með þér í ræktina, ferðalagið eða vinnuna! Hann er 400 ml og snúrulaus sem gerir hann einstaklega hentugan fyrir fólk sem er á ferðinni.
Blandarinn er með hleðslurafhlöðum, tveimur 700mAH, sem duga fyrir allt að 15 drykkjarblöndur á hverri hleðslu. Hleðslan er mjög þægileg með segulkló sem smellist á og tekur aðeins 2 tíma að fullhlaða rafhlöðuna.
Plastið er án BPA efna og þolir uppþvottavél. Sérstakur siliconrhringur er á botninum til að auka stöðuleika blandarans við notkun.
Hnífsblaðið er alltaf öruggt í notkun þar sem það vinnur inní glasinu og mótorinn slekkur á sér um leið og glasið er tekið af lokinu.
Led ljós á lokinu lætur vita hvenær blandan er tilbúin.
Ferðablandarinn vann til hinna virtu Reddot design award fyrir sína einstöku hönnun enda er búið að hugsa fyrir hverju einasta smáatriði.
Velkomin í vefverslun Tunglskins. Þessi síða notar vafrakökur (e. Cookies). Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka. Samþykkja.