• is
  • en

InFace Facial Cleaner Pro

REF: TNG000312

InFace Facial Cleaner Pro

REF: TNG000312

InFace

Staða: til á lager og tilbúið til afhendingar

7.990 kr.

Örugg greiðsla:

RapydNetgiro
Xiaomi inFace Sonic Clean Pro Facial Cleansing Brush
 
Djúphreinsun
Xiaomi hefur heilsu viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Af þessum sökum hafa þeir aukið við úrval tækja til persónulegrar umhirðu og kynna þetta nýja tæki til umhirðu andlitsins. Það er með hljóðbylgjutækni sem, ásamt titringi burstanna, gerir kleift að djúphreinsa, eyða dauðri húð, umfram fitu eða förðun og forðast útvíkkun svitahola; en að auki mun það nudda vöðva í andliti okkar til að forðast ótímabæra öldrun og vera geislandi miklu lengur.
 
Fimm titringsstillingar og þrjú hreinsunarsvæði
Djúphreinsunin og nuddið á andliti okkar er framkvæmt með einhverri af fimm titringsstillingum, allt frá 1200 til 4650 snúninga, og þú velur þá sem hentar best hreinsunarþörfum þínum hverju sinni. Tækið hefur einnig þrjú þrifasvæði, auðkennd með burstum af mismunandi stærðum sem henta hverju andlitssvæði.
 
Hágæða, vatnshelt efni með IPX7 staðli
Gæði vörunnar stafar ekki aðeins af tæknilegri virkni, heldur einnig af þeim gæðaefnum sem eru notuð. Til dæmis er Xiaomi InFace Sonic Clean Pro úr hágæða sílikoni, sem er mjúkt og öruggt fyrir allar húðgerðir. Og til að auðvelda þér að meðhöndla og þrífa andlit þitt er það með 15 ° halla. Það hefur að sjálfsögðu IPX7 vatnsþol, svo þú getur notað það á blautt andlitið eða skolað það af eftir notkun (ekki sökkva því meðan það er í gangi).
 
400mAh rafhlaða; allt að 3 mánaða notkun
Eitt sem við elskum í tæki af þessu tagi, er rafhlöðuending. Ekki viljum við þurfa að hætta þrifunum í miðjum klíðum. Ekki hafa áhyggjur, því Xiaomi inFace Sonic Clean Pro veitir okkur allt að 3 mánaða rafhlöðuendingu við notkun, nokkrum sinnum á dag, þökk sé 400mAh rafhlöðunni.
 
Minna tæki og geymslubox fylgir með
Að sjálfsögðu geturðu tekið það með þér hvert sem þú ferð og hreinsað andlitið á ferðalögum þínum, þar sem Xiaomi inFace Sonic Clean Pro er um það bil á stærð við sápustykki og passar í hvaða snyrtitösku sem er. Það fylgir einnig hulstur til að geyma tækið þegar það er ekki í notkun.
 
Notkunarleiðbeiningar:
Ekki hafa áhyggjur þó þú hafir aldrei notað svona; Xiaomi inFace Sonic Clean Pro facial brush er mjög einfaldur í notkun:
1. Bleyttu andlitið.
2. Settu hreinsikrem á burstann.
3. Ýttu á takkann þar til tækið fer að víbra.
4. Stilltu hraðann á víbringnum.
5. Nuddaðu í hringi um andlitið og dreifðu hreinsikreminu jafnt.
6. Þegar það er búið, hreinsaðu þá andlitið og þrífðu burstann.
7. Tilbúin!
 
Tæknilýsing:
Nafn: Xiaomi inFace Sonic Clean Pro Facial
Framleiðandi: Xiaomi inFace
Tegund: MS2000 Upgrade Version
Efni: sílikon
Rafhlaða: 400 mAh
Hleðsluspenna: 5V
Stærð: 80 x 53 x 30.4 mm
Þyngd: 83 gr.
 
Innihald pakka:
1x Xiaomi inFace Sonic Cleansing Brush Blue
1x geymslukassi
1x hleðslusnúra
Redmi
Mi
Yeelight
Samsung
Openear
Aqara
Amazfit
Enchen
Viomi
Cecotec
InFace
Doctor B.
IMI
POCO
Xiaomi
Lemo
70mai
Berrcom
SanDisk
Soocas
Wuben
Xiaovv
Roidmi
Google
Tuya
Escam
Huawei
Roborock
Hutt
Haylou
Ulefone
Petkit
Amazon
Baseus
OnePlus
BigBig Won
Motospeed
TP-LINK
Petoneer
Apple
Deerma
Wanbo
OneOdio
SJCAM
Jeeback
Blackview
Top
Velkomin í vefverslun Tunglskins. Þessi síða notar vafrakökur (e. Cookies). Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka
Stilla Taka