Einstaklega vandaður og öruggur snjallhjálmur frá Wosawe sem kemur sér vel fyrir alla þá sem eru á ferðinni í skammdeginu. Það er skært ljós að framan sem lýsir vel í myrkrinu og rauður ferhyrningur sem blikkar svo auðvelt er að sjá notandann á ferð.
Hjálminn er hægt að stækka og minnka eftir þörfum, bæði á höfði og eins ólar, og hann er klæddur mjúku og endingargóðu fóðri.
Wosawe hjálmurinn er með endingargóða liþíum rafhlöðu sem endist allt að 10 klukkustundir í fullri notkun hverju sinni.
Velkomin í vefverslun Tunglskins. Þessi síða notar vafrakökur (e. Cookies). Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka. Samþykkja.